21.03.2016

Kynning­ar­fund­ur Startup Reykja­vík í Borgar­túni 19

Á morgun, þriðjudaginn 22. mars kl.17:00-18:00, verður fundur í höfuðstöðvum Arion banka þar sem farið verður yfir það hvernig fyrirtæki geta hagnast af því að fara í gegnum viðskiptahraðal eins og Startup Reykjavík. Markmið fundarins er að veita fólki innblástur og sýna fram á að engar hindranir eru of stórar ef fólk veit hvað það vill og hvert það stefnir. Á fundinum munu nokkrir reyndir kvenfrumkvöðlar deila reynslu sinni af þeirri rússíbanareið sem oft getur fylgt frumkvöðlastarfinu.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig á þennan viðburð og eru allir hjartanlega velkomnir.

Á viðburðinum munu taka til máls:

  • Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður nýsköpunar hjá Arion Banka

  • Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups

  • Sesselja Vilhjálmsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Tagplay

  • Hrönn Margrét Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Ankra

Nú styttist í að umsóknarfrestur fyrir þátttöku í Startup Reykavík renni út, en hægt er að sækja um til 31. mars. Óskað er eftir umsóknum frá kraftmiklum teymum sem hafa í farteskinu snjallar viðskiptahugmyndir.

Nánari upplýsingar um Startup Reykjavík er að finna hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira