22.02.2018

Kynning­ar­fund­ur um hlut­hafa­sam­komulag og kauprétt í sprota­fyrir­tækj­um

Föstudaginn 23. febrúar stendur Startup Reykjavík fyrir kynningarfundi í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Á fundinum verður fjallað um hluthafasamkomulag, kauprétti og ráðningu nýrra starfsmanna í sprotafyrirtækjum sem allt eru viðfangsefni sem oft vefjast fyrir sprotafyrirtækjum. Fundurinn hefst kl. 12:00 og stendur til kl. 13:30.

Dagskrá fundarins:

  • Á þitt fyrirtæki heima í Startup Reykjavík?
    Edda Konráðsdóttir frá Icelandic Startups

  • Nýsköpunarlögin 2016
    Bergþóra Halldórsdóttir frá Samtökum atvinnulífsins

  • Ráðgjöf um gerð kaupréttarsamninga
    Ásgeir Skorri Thoroddsen frá KPMG

  • Notkun kaupréttarsamninga í sprotafyrirtæki
    Magnús Ingi Óskarsson frá Calidris

  • Hluthafasamkomulag
    Einar Gunnar Guðmundsson frá Arion banka

Startup Reykajvík er viðskiptahraðall þar sem tíu sérvalin sprotafyrirtæki njóta ráðgjafar og leiðsagnar þaulreyndra sérfræðinga í tíu vikur í þeim tilgangi að hraða þróunarferlinu og koma vöru á markað.

Opið er fyrir umsóknir á startupreykjavik.is til og með 8. apríl. Hraðallinn hefst þann 11. júní og lýkur þann 17. ágúst. Óskað er eftir umsóknum frá öflugum teymum með nýjar lausnir á sviði tækni og skapandi greina, ætlaðar alþjóðamarkaði.

Startup Reykjavík er samstarfsverkefni Arion banka og Icelandic Startups.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira