21.06.2017

Lækkun á óverð­tryggð­um vöxt­um íbúða­lána

Í kjölfar lækkunar Seðlabanka Íslands á stýrivöxtum, sem kynnt var 14. júní, hefur verið ákveðið að lækka óverðtryggða vexti íbúðalána Arion banka um 0,25 prósentustig.

  • Breytilegir óverðtryggðir vextir voru 6,10% og lækka í 5,85%

  • Óverðtryggðir vextir fastir til þriggja ára voru 6,15% og lækka í 5,90%

  • Óverðtryggðir vextir fastir til fimm ára voru 6,20% og lækka í 5,95%

Vaxtalækkunin hefur áhrif á öll ný íbúðalán með óverðtryggðum vöxtum sem veitt eru frá og með 21. júní og eldri íbúðalán sem bera breytilega óverðtryggða vexti. Breytingin hefur hvorki áhrif á verðtryggð lán né eldri lán með föstum, óverðtryggðum vöxtum.

Nánari upplýsingar um íbúðalán Arion banka má finna á sérstakri íbúðalánasíðu en frekari upplýsingar um vexti eru í vaxtatöflu og í yfirliti vaxtaþróunar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira