19.05.2017

Lækkun á óverð­tryggð­um vöxt­um íbúða­lána

Í kjölfar lækkunar Seðlabanka Íslands á stýrivöxtum, sem kynnt var 17. maí, hefur verið ákveðið að lækka óverðtryggða vexti íbúðalána Arion banka um 0,25%.

  • Breytilegir óverðtryggðir vextir voru 6,35% og lækka í 6,10%

  • Óverðtryggðir vextir fastir til þriggja ára voru 6,4% og lækka í 6,15%

  • Óverðtryggðir vextir fastir til fimm ára voru 6,45% og lækka í 6,20%

Vaxtalækkunin hefur áhrif á öll ný íbúðalán með óverðtryggðum vöxtum sem veitt eru eftir föstudaginn 20. maí og einnig eldri íbúðalán sem bera breytilega óverðtryggða vexti. Athygli er vakin á að þessi breyting hefur hvorki áhrif á verðtryggð lán né eldri lán með föstum óverðtryggðum vöxtum.

Nánari upplýsingar um íbúðalán Arion banka má finna á sérstakri íbúðalánasíðu en frekari upplýsingar um vexti eru í vaxtatöflu og í yfirliti vaxtaþróunar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira