02.10.2026

Langur vet­ur, hæg­ar leys­ingar: Þurf­um við á krísu að halda?

Arion banki hélt morgunfund í höfuðstöðvum sínum, Borgartúni 19. miðvikudaginn 30. september síðastliðinn, og kynnti þar nýja hagspá greiningardeildar bankans fyrir árin 2026-2029. Fundinn sátu meðal annars fulltrúar atvinnulífs, fjárfesta og viðskiptavina bankans. 

Yfirskrift hagspárinnar, Langur vetur, hægar leysingar, endurspeglar það mat Arion greiningar að efnahagsbatinn verði hægari en vonast var til. Samkvæmt spánni eru alþjóðleg óvissa, háir vextir, þrálát verðbólga og hægari vöxtur einkaneyslu meðal helstu áhrifaþátta næstu ára.   

Brýnt að hlúa betur að íslenskum verðbréfamarkaði 

Fundurinn hófst á kröftugu opnunarávarpi Jóhanns G. Möller framkvæmdastjóra markaða Arion banka.  

Í erindinu lagði Jóhann áherslu á að skapa þurfi hagstæðari umgjörð fyrir íslenskan verðbréfamarkað og að mikilvægt sé að ráðast í umbætur sem auka samkeppnishæfni Íslands og styrkja fjárfestingaumhverfið. Þá snerti Jóhann einnig á ríkisfjármálum og hvatti hið opinbera til að leita fleiri leiða en skattahækkana til að ná fram hallalausum fjármálum.  

Hagvöxtur undir sögulegu lágmarki 

Því næst kynnti Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, hina nýju hagspá greiningardeildarinnar.  

Fram kom að búist sé við 1,2% hagvexti á þessu ári og 1,6% hagvexti á næsta ári, sem er undir sögulegu meðaltali. Jafnframt er gert ráð fyrir því að verðbólga verði áfram yfir markmiði næstu misseri, en fari þó minnkandi, og að vaxtalækkanir hefjist ekki fyrr en síðar á næsta ári.  

Greiningardeildin telur þó að íslenskt hagkerfi standi á traustum grunni til lengri tíma litið og að útflutningsgreinar muni leggja sterkan grunn að hagvexti þegar á spátímann líður. 

Í hagspánni er einnig bent á að heimili hafi almennt sterka fjárhagsstöðu þrátt fyrir háa vexti og aukna svartsýni, en að einkaneysla muni þróast með hóflegri hætti á næstu misserum. Þá er gert ráð fyrir áframhaldandi hægagangi á húsnæðismarkaði, auknu atvinnuleysi til skamms tíma og að fjárfesting dragist saman áður en hagkerfið sækir aftur í sig veðrið.  

Á móti vegi væntingar um aukinn útflutning, meðal annars frá ferðaþjónustu, sjávarútvegi, fiskeldi, álframleiðslu og gagnaverum. 

Þurfum við krísu? 

Lokafyrirlesari fundarins var Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem flutti erindið Þurfum við krísu?  

Bjarni gerði því skóna að ytri áföll og efnahagslegir erfiðleikar hefðu í áranna rás stundum stuðlað að nauðsynlegum umbótum. Hann fjallaði meðal annars um þróun vinnumarkaðarins, framleiðni, launaþróun og verðbólgu og lagði áherslu á að tímabært væri að endurmeta þær leiðir sem farnar hafa verið í íslensku efnahagslífi.  

Bjarni vitnaði meðal annars orðrétt í Þórarinn G Pétursson, varaseðlabankastjóra peningastefnu, sem lét hafa eftirfarandi eftir sér á kynningarfundi peningastefnu fyrr á árinu, nánar tiltekið í febrúar: 

„Ég held að það sé kominn tími til að við bara stöldrum við sem þjóð og segjum: Hvenær ætlum við að hætta þessari tilraun að hækka kostnað og laun langt umfram það sem þjóðarbúið getur staðið undir, og langt umfram það sem gerist í öðrum löndum, en á sama tíma ætlast til þess að verðbólga sé lítil og lág og vextir séu bara eins og í öðrum löndum?“  

Erindið vakti töluverðar umræður um tengsl launaþróunar, framleiðniaukningar og stöðugleika í hagkerfinu. 

Hagspá Arion banka fyrir árin 2026-2029 er aðgengileg hér:

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira