05.04.2019
Lausnir vegna tímabundins tekjumissis
Til að koma til móts við þá sem misst hafa störf sín að undanförnu hefur bankinn vakið sérstaka athygli á þeim lausnum sem eru í boði vegna tímabundins tekjumissis. Nánari upplýsingar eru aðgengilegar hér.
Meðal úrræða hjá Arion banka eru:
Greiðsludreifing reikninga / korta
Yfirdráttarheimild
Skuldabréfalán til skemmri tíma
Skilmálabreyting, lenging eða frysting lána
Endurfjármögnun láns
Viðskiptavinir eru velkomnir til okkar í ráðgjöf þar sem farið er yfir fjármálin, staðan metin og ræddar leiðir til að leysa úr fjárhagsvandanum, hvort sem hann er til skemmri eða lengri tíma.