06.05.2025

LAX­EY lýk­ur 5 millj­arða hluta­fjárút­boði

LAXEY, sem byggir upp félag með allt að 36.000 tonna (HOG) ársframleiðslu á laxi í landeldi í Vestmannaeyjum, lauk í síðustu viku 5 milljarða hlutafjáraukningu, sem nemur um 35 milljónum evra. Þessi áfangi markar mikilvægt skref í átt að byggja upp ársframleiðslu félagsins í 10.000 (HOG) tonn á hágæða landeldislaxi.

Samhliða hlutafjáraukningunni hefur LAXEY gert langtímasamkomulag við Arion banka sem felur bæði í sér endurfjármögnun og stækkun á lánalínum vegna fyrsta áfanga, sem og nýja fjármögnun til að styðja við uppbyggingu annars áfanga. Heildarfjármögnun sem tryggð hefur verið með þessari blönduðu hlutafjár- og lánsfjármögnun nú, nemur alls 19 milljörðum króna (130 milljónir evra), sem endurspeglar mikið traust fagfjárfesta á framtíðarsýn félagsins. LAXEY hefur frá stofnun safnað yfir 17 milljörðum króna í hlutafé.

Arion banki var umsjónaraðili hlutafjárútboðsins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira