26.08.2026

Leið­in að láns­hæfu ný­sköp­un­ar­fyrir­tæki

Arion banki býður til fræðsluviðburðar í Borgartúni 19, fimmtudaginn 3. september kl. 17:00.

Viðburðurinn er tileinkaður nýsköpun og vexti og er ætlaður stofnendum, fjármálastjórum og öðrum sem koma að rekstri sprotafyrirtækja og fyrirtækja í örum vexti. Að sjálfsögðu hvetjum við þó öll þau sem hafa áhuga á framtíð nýsköpunar á Íslandi til að mæta, fræðast og taka þátt í áhugaverðum umræðum.

Skrá sig til leiks

Að þessu sinni er umræðuefnið fjármögnunarleiðir sem standa nýsköpunarfyrirtækjum til boða og hvernig bankinn getur stutt við vöxt þeirra.

Jarþrúður Ásmundardóttir mun fræða gesti um EIF-fjármögnun, sjóðstreymislán og hvernig bankinn metur lánshæfni sprotafyrirtækja. Jafnframt verða kynntar sérstakar lausnir Arion banka sem einfalda störf fjármálastjórans.

Þá munum við spjalla við kraftmikla gesti úr sprotaumhverfinu sem deila reynslu sinni af rekstri og fjármögnun – bæði sigrum og áskorunum.

Viðmælendur eru:

  • Andri Heiðar Kristjánsson, meðeigandi og fjárfestir hjá Frumtak Ventures

  • Þórhildur Edda Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Sweeply

  • Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík

Sérfræðingar fyrirtækjasviðs bankans verða svo á staðnum, reiðubúnir að ræða málin eftir að formlegri dagskrá lýkur.

Boðið verður upp á léttar veitingar og drykki.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira