05.10.2018

Let´s talk about pensi­on funds – fræðsla um lífeyris­mál á ensku

Líflegar umræður sköpuðust á fundinum Let´s talk about pensioin funds sem Arion banki og Vera Center stóðu sameiginlega fyrir í Kringlunni í gærkvöldi. Fundurinn var sérstaklega ætlaður erlendu fólki sem starfar hér á landi og vill þekkja réttindi sín og skyldur í lífeyrismálum.

Á fundinum fór Sveinn Héðinsson, sérfræðingur í lífeyrismálum bankans, almennt yfir réttindi og skyldur launþega og atvinnurekenda og útskýrði hvernig skyldulífeyrir og séreignasparnaður virka.

Fundurinn í gær er annar viðburðurinn sem Arion banki og Vera Center standa sameiginlega fyrir en fyrr á árinu var haldinn fundur sem bar heitið Know your basic savings and financing options og þá var áherslan lögð á almenna fjármálafræðslu.

Vera Center er félag sem sérhæfir sig í þjónustu fyrir einstaklinga sem eru búsettir hér á landi og vilja fá hagnýtar upplýsingar um samfélagið. Allir viðburðir á vegum félagsins fara fram á ensku.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira