21.06.2017

Lið Arion banka tek­ur þátt í WOW Cyclot­hon

Líkt og fyrri ár tekur Arion banki þátt í hjólreiðakeppninni WOW cyclothon. Undanfarna mánuði hefur hópur vaskra hjólreiðagarpa í hjólaklúbbi bankans æft stíft fyrir keppnina en í lok maí var endanlegt keppnislið valið á úrtökumóti klúbbsins.

Að þessu sinni sendir bankinn blandað lið tíu keppenda og mun liðið leggja af stað frá Egilshöll kl. 19:00 í kvöld. Markmið liðsins er ekki einungis að hjóla hringinn í kringum Ísland á sem skemmstum tíma heldur einnig að safna áheitum fyrir Slysavarnarfélagið Landsbjörg.

Við óskum hjólagörpum Arion banka góðs gengis og hlökkum til að fylgjast með þeim á leiðinni um landið. Hægt er að fylgjast með liðinu á Facebook-síðunni WOW – Arion banki en tekið er á móti áheitum á vefsíðu WOW cyclothon.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira