28.11.2023

Líður að lok­um þjónustu okk­ar á Kefla­vík­ur­flug­velli

Nú liggur fyrir niðurstaða í útboði Isavia varðandi fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli næstu árin. Arion banki sendi inn metnaðarfullt tilboð varðandi áframhaldandi fjármálaþjónustu en niðurstaðan er sú að annar rekstraraðili varð hlutskarpari í útboðinu og mun því taka við fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli 1. febrúar næstkomandi.

Við erum stolt af þeirri starfsemi sem við höfum verið með á Keflavíkurflugvelli síðan 2016. Þjónusta okkar hefur einkennst af metnaði til að taka vel á móti öllum þeim sem fara um flugvöllinn og hefur starfsfólk okkar staðið sig frábærlega, á stundum við krefjandi aðstæður.

Við óskum nýjum rekstraraðila velfarnaðar í sínum störfum og þökkum fyrir okkur.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira