20.04.2018

Lífeyris­ráð­gjöf flyst í höfuð­stöðv­ar Arion banka

Arion banki sér um vörslu og daglegan rekstur Frjálsa lífeyrissjóðsins, Lífeyrisauka, EFÍA, Lífeyrissjóðs Rangæinga og LSBÍ. Útgreiðsluráðgjöf og öll lífeyrisráðgjöf að lánaráðgjöf undanskilinni, fer frá og með 20. apríl fram hjá lífeyrisráðgjöfum í höfuðstöðvum bankans, Borgartúni 19. Eftir sem áður mun starfsfólk í útibúum Arion banka annast kynningu á sjóðunum.

Lífeyrissjóðir starfa í flóknu umhverfi sem reglulega tekur breytingum og því hefur þjónusta þeirra verið í stöðugri þróun. Liður í þeirri þróun er aukin sjálfsafgreiðsla sem fer fram í gegnum Mínar síður en áfram verður ákveðin þörf fyrir persónulega sérfræðiráðgjöf, ekki síst þegar kemur að útgreiðslu. Lögð hefur verið áhersla á að efla og bæta aðgengi að lífeyrisþjónustu með fjölbreyttum þjónustuleiðum.

Fjarfundir og fundarbókanir

Auk móttökunnar í höfuðstöðvum Arion banka er boðið upp á fjarfundi með lífeyrisráðgjafa í útibúum Arion banka á landsbyggðinni og Kringlunni í Reykjavík. Mælt er með því að fundir með lífeyrisráðgjafa verði bókaðir fyrirfram, þegar því verður við komið.

Er það von okkar að þessi breyting mælist vel fyrir og að allir finni þjónustuleiðir við sitt hæfi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira