08.10.2026

Lífstakt­ur: Verk Louisu Matth­ías­dótt­ur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Við hvetjum alla listunnendur til að líta inn hjá okkur í Borgartúni og njóta verka þessarar einstöku listakonu. Boðið verður upp á kaffi og kruðerí. Opnunin stendur á milli 13:30-16:00.

Glæsilegur og sérstæður ferill

Louisa Matthíasdóttir (1917–2000) skipar mikilvægan sess í íslenskri listasögu. Um tvítugt hafði Louisa stundað listnám í Kaupmannahöfn og París. Eftir heimkomuna tengdist Louisa framsæknum listamönnum í Reykjavík en hélt síðar til New York til frekara náms. Borgin varð heimili Louisu til æviloka og þar hélt Louisa sína fyrstu einkasýningu árið 1948.

Skýr þráður liggur í gegnum allt höfundarverk Louisu. Viðfangsefnin sótti Louisa einkum í nærumhverfi sitt og málaði fólk, dýr, landslag og kyrralíf með breiðum, styrkum strokum og björtum litum. Samspil lita og forma, ljóss og skugga, einkennir verkin ásamt tærleika, festu og ríkri frelsistilfinningu.

Louisa bjó í Bandaríkjunum í hartnær sex áratugi og naut þar viðurkenningar fyrir list sína . Á Íslandi vöktu verk hennar fyrst verulega athygli þegar Louisa var komin hátt á sjötugsaldur, einkum landslagsmyndir hennar frá Íslandi. Þær eru þó aðeins hluti af umfangsmiklu og heildstæðu höfundarverki.

Á sýningunni verða um 70 verk frá ólíkum tímabilum á ferli Louisu. Verkin koma úr einkasafni Sigurðar Arngrímssonar sem veitir fjölbreytta sýn á höfundarverk hennar. Sýningin er jafnframt í nálægð við æskuheimili listakonunnar, Höfða.

Hulda Stefánsdóttir, sem flytur fyrirlesturinn við opnunina, er myndlistarmaður og aðstoðarrektor rannsókna við Listaháskóla Íslands. Hún stundaði framhaldsnám og starfaði um árabil í New York, rétt eins og Louisa.

Sýningin stendur til 12. febrúar og verður opin á fimmtudögum og föstudögum á opnunartíma bankans, milli klukkan 9 og 16. Einnig verður hægt að skoða sýninguna utan þess tíma eftir samkomulagi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira