29.04.2024

Línu­dans í átt að jafn­væg­i: Efna­hags­horf­ur 2024-2026

Greining Arion banka kynnti í morgun nýja efnahagsspá fyrir árin 2024-2026. Samkvæmt spánni verður 1,3% hagvöxtur í ár, sem er nokkuð minni vöxtur en áður var gert ráð fyrir. Breytinguna má fyrst og fremst rekja til einkaneyslunnar, sem hefur gefið meira eftir en áður var spáð. Þróun innlendrar eftirspurnar á yfirstandandi ári dregur dám af stórfelldum vaxtahækkunum síðasta árs, þar sem útlit er fyrir óverulegan einkaneysluvöxt og óbreytta fjárfestingu. Á móti vega ágætar útflutningshorfur, einkum í ferðaþjónustu, en ekki síður í öðrum „óhefðbundnari“ útflutningsgreinum, s.s. eldi. Því er útlit fyrir að utanríkisverslun sitji sem fastast í bílstjórasætinu og drífi áfram hagvöxtinn, annað árið í röð.

Þrátt fyrir hægagang í ár er útlit fyrir að innlend eftirspurn verði fljót að hrista af sér deyfðina og að hagvöxtur taki við sér strax á næsta ári, samhliða minnkandi verðbólgu og lækkandi vöxtum. Þessi sýn endurspeglar óneitanlega trú á Seðlabankanum, að honum takist að sigla þjóðarskútunni nokkurn veginn óskaddaðri milli skers og báru.

Eins og ævinlega er óvissan mikil. Seðlabankinn á flókið verk fyrir höndum, að ná tökum á verðbólgu og tryggja akkeri verðbólguvæntinga, helst án þess að steypa hagkerfinu í djúpan samdrátt. Hins vegar er Seðlabankinn á verðbólgumarkmiði, ekki hagvaxtarmarkmiði, og því gætu vextir reynst hærri til lengri tíma en hér er gert ráð fyrir, með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á fjárfestingu, hagvöxt og atvinnuleysi. Því er nauðsynlegt að allir leggist á eitt til að tryggja verðstöðugleika, og hafa nú þegar verið stigin jákvæð skref í þá átt í formi kjarasamninga.

Efnahagshorfur 2024-2026

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira