20.05.2022

Lok­að fyrir símgreiðsl­ur til Rúss­lands

Vegna alþjóðlegra þvingunaraðgerða í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu hefur Arion banki komið á margvíslegum ráðstöfunum sem snúa að viðskiptum tengdum Rússlandi, Hvíta Rússlandi og Úkraínu. Nú hefur verið ákveðið að loka fyrir allar símgreiðslur til Rússlands, óháð því hvort móttakandi sé á lista yfir þvingunaraðgerðir eða ekki. Að baki býr m.a. að alþjóðlegir bankar sem sinna milligöngu slíkra greiðslna kunna eftir atvikum að hafna afgreiðslu þeirra.

Þá munu öll önnur viðskipti tengd Rússlandi, Hvíta Rússlandi eða Úkraínu áfram sæta aukinni vöktun hjá bankanum. Vegna þessa kann að taka lengri tíma að afgreiða slík viðskipti og viðskiptavinir mega búast við að þurfa að veita ítarlegri upplýsingar um viðskiptin.

Vinsamlegast athugið að aðgerðir geta breyst með skömmum fyrirvara.

Ef spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við okkur með því að senda okkur póst á arionbanki@arionbanki.is, hringja í þjónustuverið okkar í síma 444 7000 eða í gegnum netspjallið hér á arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira