01.09.2016
Lokadegi Startup Reykjavik fagnað
Lokadagur viðskiptahraðalsins Startup Reykjavik fór fram föstudaginn 26. ágúst sl. fyrir fullu húsi gesta.
Áður en teymin tíu, sem unnið hafa að sínum viðskiptahugmyndum í allt sumar, kynntu sig, tóku til máls bankastjóri Arion banka, Forseti Íslands, Marta Sjögren frá sænska frumtaksfjárfestingasjóðnum Northzone og Armann Kojic, stofnandi fyrirtækisins Apon.
Marta Sjögren veitti gestum innsýn í fjárfestingar í frumkvöðlafyrirtækjum á Norðurlöndunum og Armann Kojic talaði um reynslu sína af Kísildalnum í Kaliforníu.
Að því loknu kynntu Startup Reykjavik fyrirtækin sig hvert og eitt með sjö mínútna kynningu:
Platome
Framleiðir næringu fyrir stofnfrumur til að flyta fyrir þróun á stofnfrumumeðferðum
Convex
Skemmtilegur fyrstu persónu ævintýraleikur þar sem notendur byggja upp eigin persónu
Strivo
Nethugbúnaður sem hjálpar sjúkraþjálfurum og einkaþjálfurum að setja upp æfingaprógrömm, fylgjast með árangri og halda utan um viðskiptavini með nýjum og skemmtilegum hætti
Icelandic Lava Show
Mögnuð sýning þar sem alvöru bráðið hraun rennur inn í sýningarsal og yfir ís með tilheyrandi sjónarspili
Noted
Vettvangur fyrir nemendur til að deila glósum og námsefni sín á milli
Isold Film
Lána- og fjárfestingasjóður fyrir kvikmynda- og sjónvarpsgerð
Drexler
Leikjadrifinn tónlistarsamfélagsmiðill
Flow VR
Býður upp á upplifun tengda nútíma hugleiðslu og vellíðan
TotalHost
Gerir AirBnB leigusölum kleift að fá greiddar söluþóknun fyrir bókaðar ferðir innanlands
SÖLVA Chocolates
Framleiðir hágæða súkkulaði búið til frá grunni úr lífrænum hráefnum
Óhætt er að segja að góður rómur hafi verið gerður að kynningum fyrirtækjanna og mikil ánægja á meðal gesta.
„Húrra fyrir Startup Reykjavik þið toppuðuð ykkur aftur í ár. Pitchin voru kraftmikil, fagleg og skemmtileg“, sagði Svana Gunnarsdóttir, fjárfestingastjóri og eigandi hjá Frumtak. Marta Sjögren hjá Northzone sagði í viðtali við Norðurskautið að gæði kynninganna hefðu komið sér á óvart, fyrirtækin hefðu komið sínum viðskiptahugmyndum skilmerkilega á framfæri á skemmtilegan hátt og að hún myndi strax í kjölfarið setja sig í sambandi við a.m.k. tvö fyrirtækjanna.
Startup Reykjavik og fjárfestadagurinn eru óneitanlega orðin einn af hápunktum ársins í íslensku sprotaumhverfi þar sem fjárfestar og aðrir áhugasamir kynnast því besta sem gerist á Íslandi á þessu sviði.
Myndir frá deginum má sjá á Facebook-síðu Startup Reykjavík.