06.10.2017

Lýður Þór Þor­geirs­son ráð­inn framkvæmda­stjóri fjár­festingar­banka­sviðs Arion banka

Lýður Þór Þorgeirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs Arion banka og tekur við starfinu þann 25. október. Starf framkvæmdastjóra fjárfestingarbankasviðs heyrir beint undir bankastjóra og tekur Lýður sæti í framkvæmdastjórn bankans.

Lýður er með B.Sc. gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá MIT Sloan School of Management auk þess að hafa lokið löggildingu í verðbréfamiðlun. Frá árinu 2010 starfaði hann hjá GAMMA Capital Management hf., fyrst sem sjóðsstjóri ýmissa fagfjárfestasjóða en frá árinu 2013 sem framkvæmdastjóri sérhæfðra fjárfestinga. Lýður er kvæntur Ragnheiði Harðardóttur og eiga þau þrjá drengi.

Iða Brá Benediktsdóttir sem gegnt hafði starfi framkvæmdastjóra fjárfestingarbankasviðs frá árinu 2016 tók við starfi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Arion banka þann 1. júlí.

Um fjárfestingarbankasvið Arion banka

Fjárfestingarbankasvið Arion banka samanstendur af fyrirtækjaráðgjöf, markaðsviðskiptum og greiningardeild. Meginhlutverk sviðsins er að leiða saman kaupendur og seljendur á fjármálamarkaði og veita fyrirtækjum og fjárfestum ráðgjöf um uppbyggingu rekstrar og efnahags. Þannig eru helstu þjónustuþættir fjárfestingarbankasviðs miðlun verðbréfa og gjaldeyris, fyrirtækjaráðgjöf og greining. Á sviðinu starfa um 30 sérfræðingar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira