08.04.2019

Mót­taka inn­lendra ávís­ana hætt þann 1. maí

Frá og með 1. maí mun Arion banki ekki lengur taka við innlendum ávísunum en bankinn hætti að selja ávísanahefti og bankaávísanir 1. nóvember sl. og var tilkynning þess efnis birt á vefsíðu bankans og haft samband við þá aðila sem keyptu reglulega tékkhefti.

Ástæða þessa er að eftirspurn er afar takmörkuð og hafa flest fjármálafyrirtæki landsins þegar hætt sölu tékkhefta og bankaávísana.

Bankinn tekur áfram við erlendum ávísunum í USD, GBP, CHF og EUR myntum.

Við bendum á að Arion appið er nú opið öllum hvort sem fólk er í reglulegum viðskiptum við Arion banka eða ekki. Allir geta sótt appið, stofnað reikninga, byrjað reglulegan sparnað og sótt um Núlán.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira