05.04.2017

Netöryggi í viðskipt­um

Í síðustu viku buðu Arion banki og Breska sendiráðið í Reykjavík til opinnar ráðstefnu um netöryggi í höfuðstöðvum Arion banka. Markmið ráðstefnunnar var að ræða mikilvægi netöryggis í viðskiptum og hvað íslenskt viðskiptalíf geti lært af reynslu breskra yfirvalda. Vel á annað hundrað gestir sóttu ráðstefnuna en fjöldi innlendra og erlendra fyrirlesara komu þar fram og ræddu ólíka þætti á sviði öryggismála.

Það var Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, sem opnaði ráðstefnuna. Í máli sínu nefndi Höskuldur meðal annars mikilvægi málaflokksins, þær áskoranir sem fylgja stafrænum heimi og þá áherslu sem Arion banki leggur á öryggismál.

Michael Nevin, sendiherra Bretlands í Reykjavík, tók í sama streng en lagði einnig áherslu á þau tækifæri sem felast í að tengja saman aðila úr fræðasamfélaginu, viðskiptalífinu og stjórnsýslunni til að deila reynslu, auka vitund og vinna að lausnum.

Meðal fyrirlesara var Simon Vernon frá e2e-assure sem í erindi sínu sýndi ráðstefnugestum hve auðveld innbrot í tölvur og snjallsíma geta verið í gegnum þráðlausar nettengingar. Ráðstefnustjóri var Birta Bjargardóttir frá Breska sendiráðinu í Reykjavík.

Upptöku frá fyrri hluta ráðstefnunnar, sem sýndur var var í beinni útsendingu, má finna á Facebook síðu Arion banka en dagskrá ráðstefnunnar í heild má sjá í viðburðadagatali Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira