19.12.2019

Nordic Visitor kaup­ir Terra Nova

Nordic Visitor hf. hefur keypt ferðaskrifstofuna Terra Nova Sól hf. af dótturfélagi Arion banka. Terra Nova var hluti af TravelCo hf. sem var stofnað í kjölfar gjaldþrots PrimeraAir og Arion banki tók yfir í júní síðastliðnum.

Kaupin eru meðal annars með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda. Kaupverð er trúnaðarmál.

Ásberg Jónsson, framkvæmdarstjóri Nordic Visitor:

„Terra Nova er rótgróið og vel rekið fyrirtæki sem byggt er upp af öflugum mannauði, sterkum viðskiptasamböndum og áratuga reynslu af sölu ferða til Íslands. Fyrirtækin Terra Nova og Nordic Visitor eru að mörgu leyti ólík þegar kemur að dreifileiðum og markaðssvæðum en í því liggja mikil tækifæri. Ekki er fyrirhugað að sameina fyrirtækin heldur verður lögð áhersla á að deila þekkingu á milli fyrirtækjanna. Markmiðið með kaupunum er að halda áfram að bæta rekstur Terra Nova og breikka þjónustuframboð samstæðunnar. Félögin tvo eru í góðum rekstri í dag og eru bæði að skila heilbrigðri afkomu. Þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi íslenskrar ferðþjónustu þá eru enn mikil tækifæri til uppbyggingar. Vonandi verður hægt að aflétta síðustu fyrirvörum kaupanna sem fyrst þar sem ég hlakka til að hitta og hefja störf með öllu því reynslumikla starfsfólki sem hefur byggt upp félagið Terra Nova.“

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var ráðgjafi seljanda og fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance ráðgjafi kaupanda.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira