03.04.2019

Nor­rænt heilsu­hakka­þon - Arion áskor­un­in

Nýverið fór fram norrænt heilsuhakkaþon í Háskólanum í Reykjavík og var Arion banki einn helsti bakhjarl hakkaþonsins. Þar kepptust íslensk og alþjóðleg teymi um að þróa notendavænar lausnir sem stuðla að bættri heilsu og auknum lífsgæðum. Þátttakendur voru 77 en alls sóttu u.þ.b. 800 einstaklingar um að fá að taka þátt.

Áskorunin fólst í því að þróa heilsutengdar vörur með því að nýta aðgengi að ýmsum gagnalindum í gegnum forritunarviðmót (API-gáttir) þeirra sem gögnin eiga. Sigurvegarar keppninnar voru Nidurtroppun.is en liðið samanstóð af tveimur læknum. Þeir hafa báðir reynslu af því að of langur tími fer oft í að útbúa plan fyrir sjúklinga sem hafa verið á sterkum verkjalyfjum og þurfa að trappa niður notkunina. Vegna tímaskorts er þessu ekki nægilega vel sinnt og til að tækla vandamálið hönnuðu þeir lausn sem gerir læknum kleift að útbúa plan til niðurtrömpunar á 10-15 sekúndum í stað 20-30 mínútna áður. En vandamál tengd ávanabindandi verkjalyfjum eru þekkt út um allan heim, sérstaklega í seinni tíð í Bandaríkjunum og þá tengt Opyum-lyfjum.

Stuðningur Arion banka fólst í því að þátttakendur fengu aðgang að forritunarviðmóti (API) bankans þar sem færslur (tilbúinna) einstaklinga voru gerðar aðgengilegar. Færslurnar voru flokkaðar eftir fyrirfram skilgreindum þáttum af Meniga, til dæmis matarinnkaupum, veitingahúsum, skyndibitum o.s.frv.

Keppendur sem tengdust Arion banka forritunarviðmótinu voru dæmdir sérstaklega í Arion banka áskoruninni en hún fólst í því að finna snjallar leiðir til að nýta fjárhagslegar upplýsingar til að hjálpa fólki að lifa heilbrigðara lífi. Keppendur gátu nýtt tilbúin fjárhagsleg gögn í gegnum API-gátt bankans.

Sigurvegari þeirrar áskorunar var teymið Salud með hugmynd sína um app sem hjálpar fólki að fylgjast með heilsu sinni með því að gefa því yfirlit yfir heilsufarstengd málefni. Lausnin byggir m.a. á gögnum frá tækjum eins og hlaupaúrum, sjúkrasögu viðkomandi og greiðslukortaupplýsingum. Appið minnir notendur á að breyta lífsvenjum eða fara til læknis svo dæmi séu tekin og hægt er að nýta lausnina beint til þess að bóka tíma hjá lækni ef mælt er með því.

Teymið Nutrification var í öðru sæti Arion banka áskorunarinnar. Hugmynd þeirra gekk út á app sem gefur notendum heilsufarseinkunn sem byggir á greiðslukortafærslum og gögnum frá tækjum eins og hlaupaúrum og þeim lífsstíl sem þær endurspegla. Lausnin miðaði að því að verðlauna „holla“ hegðun með heilsufarseinkuninni og þar af leiðandi „refsa“ óhollu hegðunarminnstri. Hægt er að deila með vinum og vandamönnum einkunninni og það ætti að virka sem hvatning til þess að gera betur á þessu sviði.

Arion banki hefur verið leiðandi á íslenskum bankamarkaði þegar kemur að nýsköpun. Frá árinu 2012 hefur bankinn staðið fyrir viðskiptahraðlinum Startup Reykjavik og fjárfest í um 70 íslenskum sprotafyrirtækjum sem hafa hlotið inngöngu í hraðalinn. Árið 2016 var bankinn fyrstur íslenskra fjármálafyrirtækja til að standa fyrir hakkaþoni þar sem þátttakendur þróuðu nýjar fjármálalausnir. Frá sama ári hefur þróun nýrra vara og þjónustu farið fram í innri viðskiptahraðli bankans þar sem um 20 nýjar vörur og þjónustuleiðir hafa litið dagsins ljós, þ.m.t. þróun apps Arion banka sem er besta bankaapp á Íslandi skv. könnun MMR.

Nánari upplýsingar um keppnina má finna á vefsíðu NHH. Hægt er að lesa meira um stafræna þróun hjá Arion banka hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira