31.05.2016

Nú bíður gjaldeyrir­inn eft­ir þér í Kefla­vík

Arion banki opnaði í maímánuði útibú í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Það er spennandi verkefni að þjónusta ferðamenn sem eru að koma til landsins eða stefna út í heim.

Flugstöð Leifs Eiríkssonar er eitt stærsta markaðstorg landsins og því mikið um að vera og hefur Arion banki komið upp þremur afgreiðslum í flugstöðinni. Höfuðáhersla er á gjaldeyrisþjónustu og endurgreiðslu virðisaukaskatts.

Viðskiptavinir Arion banka hafa um nokkurt skeið getað pantað gjaldeyri á netinu og sótt hann í útibú bankans. Í tengslum við opnun útibúa í flugstöðinni þá hefur Arion banki opnað nýjan vef, gjaldeyrir.is. Þar gefst viðskiptavinum bankans sem og viðskiptavinum annarra banka kostur á að panta gjaldeyri sem svo er hægt að sækja í útibú okkar á Keflavíkurflugvelli. Gæti ekki verið þægilegra.

Arion banki hefur einnig hafið útgáfu fyrirframgreidds greiðslukorts sem er ætlað erlendum ferðamönnum hér á landi. Kortið heitir einfaldlega Currency card. Kortið er hægt að nota á öllum þeim sölustöðum sem taka við Visa kortum. Nánar má lesa um kortið á vefnum currencycard.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira