12.01.2018

Núlán - ný raf­ræn lán til viðskipta­vina á betri kjör­um

Í dag kynnir Arion banki til sögunnar Núlán, nýja tegund lána sem hægt er að sækja um með rafrænum hætti á vef bankans.

Umsókn lánanna, undirritun lánasamnings og fylgiskjala er með rafrænum hætti sem gerir mögulegt að samþykkja og greiða lánin út til umsækjanda innan örfárra mínútna, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Núlán eru óverðtryggð með jöfnum afborgunum til allt að fimm ára. Vextir lánanna taka mið af lánshæfismati umsækjanda og hámarksfjárhæð þeirra byggir á lánaramma hvers og eins, og getur að hámarki verið tvær milljónir króna. Óski umsækjandi eftir láni umfram lánaramma er auðvelt að ljúka rafrænu greiðslumati og senda inn umsókn til bankans.

Þessi nýjung, líkt og aðrar sem bankinn hefur kynnt á síðustu misserum, er afrakstur þróunarvinnu Arion banka sem miðar að því að veita viðskiptavinum betri og þægilegri bankaþjónustu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira