28.04.2026

Ný efna­hags­spá Ari­on: Hag­kerfið seigl­ast áfram

Ný efnahagsspá Arion banka gerir ráð fyrir að það verði vont í sjóinn í ár og aðstæður krefjandi fyrir íslensku þjóðarskútuna. Umrót í alþjóðakerfinu, stríðsrekstur og hátt olíuverð kynda undir verðbólgu og auka óvissu, sem hefur letjandi áhrif á eftirspurn, hagvöxt og fjárfestingu - bæði erlendis og hérlendis. Væntingar um vaxtalækkanir eru brostnar og útlit fyrir að herða þurfi taumhald peningastefnunnar enn frekar til að koma böndum á verðbólgu og verðbólguvæntingar. Við eigum von á að vextir verði hækkaðir um 0,5 prósentur til viðbótar á þessu ári, enda útlit fyrir að verðbólga verði að meðaltali 5% og kjarasamningar á almennum vinnumarkaði í uppnámi.

Verðbólgu- og vaxtaumhverfið hefur dregið úr væntingum heimila, sem á sama tíma standa frammi fyrir hækkandi atvinnuleysi og raunverðslækkunum á húsnæði. Útlit er fyrir að samspil þessara þátta dragi úr neysluvilja heimilanna, og þar með vexti einkaneyslunnar í ár. Þrátt fyrir hægari vöxt - og samdrátt í neyslu á hvern einstakling - verður einkaneyslan engu að síður ein af megin driffjöðrum hagvaxtar, einkum þegar líða tekur á spátímann, enda er fjárhagsstaða heimilanna almennt séð sterk og raunlaun að hækka.

Eftir tvö ár af neikvæðu framlagi utanríkisverslunar til hagvaxtar teljum við að á því verði breyting í ár, og að hún leggist á sveif með hagvexti. Ástæðan liggur ekki í útflutningsvexti, þvert á móti, heldur í innflutningssamdrætti sem á rætur að rekja til gagnaveranna sem eru að koma út úr ári gríðarlegra fjárfestinga. Á sama tíma eiga útflutningsgreinarnar á brattann að sækja, þrátt fyrir sólmyrkva, gjöfula loðnuvertíð og jákvæð tíðindi af endurræsingu Norðuráls. Í ár munar mestu um tímabundinn samdrátt í álútflutningi, en spáður samdráttur í komum ferðamanna er meira áhyggjuefni. Ekki bætir úr skák að krónan er sterk, og útlit fyrir að svo verði áfram í ár, sem eykur þrýsting á útflutningsgreinarnar.

Þó óvissa sé alltaf til staðar er staðan óvenju snúin um þessar mundir. Framvindan mun ráðast af stríðsátökum, hversu langvinn þau verða og hversu alvarlegar afleiðingarnar á hrávörumarkaði verða. Hvernig sem fer teljum við að þjóðarskútan sé ágætlega vel í stakk búin til að sigla á milli skers og báru í úfnum sjó.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira