08.04.2022

Ný hagspá Arion banka

Ný hagspá Arion banka var birt í dag. Spáin gerir ráð fyrir 5,5% hagvexti árið 2022, sem er nokkuð minni hagvöxtur en gert var ráð fyrir í síðustu spá. Aukinn kraftur er að færast í innlenda eftirspurn sem kallar á umtalsverðan innflutning, á sama tíma og útflutningshorfur hafa versnað lítið eitt. Framlag utanríkisverslunar til hagvaxtar verður því ekki jafn hagfellt og áður var talið. Samkvæmt spánni mun blása byrlega í segl þjóðarskútunnar á næstu árum. Hagvöxtur verður um og yfir langtímameðaltali, drifinn áfram af einkaneyslu, fjárfestingu og útflutningi. Bein áhrif af stríðinu í Úkraínu á íslenskt hagkerfi eru takmörkuð og einskorðast nánast alfarið við vöruútflutning. Þó afleiðingar stríðsins, s.s. hátt olíuverð, gætu dregið úr getu og vilja ferðamanna hefur ferðamannaspá Arion banka tekið óverulegum breytingum. Gert er ráð fyrir að 1.600 þúsund ferðamenn sæki landið heim í ár og að ferðaþjónustan verði hryggjarstykkið í útflutningsvexti ársins. Líkt og undanfarin ár umlykur veruleg óvissa spána og verður að segjast eins og er að áhættan er mun meiri niður á við, það er að segja að það er líklegra að hagvöxtur sé ofmetinn en vanmetinn.

Viðspyrna ferðaþjónustunnar og vaxandi innlend eftirspurn endurspeglast í spá um atvinnuleysi, sem heldur áfram að hjaðna á sama tíma og laun hækka töluvert. Aðstæður á vinnumarkaði eru til þess fallnar að styðja við áframhaldandi einkaneysluvöxt og gerir spá Arion banka ráð fyrir 4,4% einkaneysluvexti í ár. Reiknað er með vexti fjárfestingar út spátímann, sem drifinn verður áfram af atvinnuvegafjárfestingu og íbúðafjárfestingu er sækir verulega í sig veðrið á næsta ári. Kraftmikil innlend eftirspurn endurspeglast í miklum innflutningsvexti. Fjárfestingavörur, neysluvörur og utanlandsferðir Íslendinga munu að miklu leyti standa undir vextinum. Þrátt fyrir mikinn innflutning heldur viðskiptaafgangurinn velli í ár og á næsta ári, en minnkar verulega og dansar í kringum núllið.

Þó jákvæð teikn séu á lofti er kemur að framboði á húsnæði verður mikil eftirspurn áfram til staðar. Spáð er áframhaldandi húsnæðisverðhækkunum en að hægja muni á taktinum um mitt ár. Fallandi framlag húsnæðisverðs til verðbólgunnar og sterkara gengi krónunnar léttir á verðbólguþrýstingi er líða tekur á árið en útlit er fyrir að verðbólgukúfurinn toppi á þriðja fjórðungi ársins. Verðbólgan verður engu að síður yfir verðbólgumarkmiði út spátímann. Versnandi verðbólguhorfur, spenna í hagkerfinu og lausari verðbólguvæntingar kalla á frekari vaxtahækkanir.

Efnahagshorfur 2022-2024

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira