10.11.2022

Ný hagspá Arion banka

Ný hagspá Arion banka var birt í dag. Spáin gerir ráð fyrir 6% hagvexti árið 2022, sem er nokkuð meiri vöxtur en gert var ráð fyrir í síðustu spá, þökk sé kröftugri einkaneyslu, hröðum bata ferðaþjónustunnar og vaxandi fjárfestingu.

Það syrtir í álinn á næsta ári sökum versnandi alþjóðlegra efnahagshorfa, sem endurspeglast í minni hagvexti hér á landi en áður var talið. Fjárfesting gefur eftir og það hægir á eftirspurnarvexti, bæði innanlands sem og eftirspurn eftir íslenskum útflutningsafurðum. Sérstaklega stendur ferðaþjónustan frammi fyrir krefjandi vetri þar sem yfirvofandi efnahagsþrengingar í Evrópu og hækkandi flugfargjöld gætu dregið úr eftirspurn eftir Íslandsferðum. Ísland býr þó að þeim kostum að auðvelt er að komast til landsins, sem er það öruggasta í heimi. Ferðamannaspáin gerir þar af leiðandi ráð fyrir áframhaldandi vexti í komum ferðamanna til landsins, þó nokkuð hægi á sökum versnandi efnahagshorfa á okkar helstu markaðssvæðum. Búist er við að 1.900 þúsund ferðamenn sæki landið heim á næsta ári og að ferðaþjónustan verði hryggjarstykkið í útflutningsvexti komandi ára.

Útlit er fyrir að aðstæður á vinnumarkaði muni styðja við einkaneysluna, þó nokkuð hægi á vexti hennar á næsta ári eftir metár í ár. Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi muni haldast nokkuð stöðugt út spátímann, á milli 3,7%-3,9%, og að fyrirtæki þurfi að mæta umtalsverðum launahækkunum á komandi misserum. Neikvæður raunlaunavöxtur er því aðeins tímabundinn. Spáð er nýjum veruleika á húsnæðismarkaði, veruleika þar sem vísitala íbúðaverðs sveiflast milli mánaða, árstakturinn fellur hratt og dansar í kringum núllið er líða tekur á næsta ár. Þá munu raunverðslækkanir vera viðvarandi næstu þrjú ár. Verðbólgan getur því hjaðnað nokkuð hratt, en sökum viðvarandi innlends verðbólguþrýstings og verðhækkana innfluttra afurða er verðbólgumarkmið Seðlabankans ekki í augsýn. Spáð er 6% verðbólgu á næsta ári. Óbreyttir vextir eru enn um sinn líklegasta niðurstaðan, en þróunin mun ráðast af kjölfestu verðbólguvæntinga, aðhaldi í ríkisfjármálum og ákvörðunum á vinnumarkaði.

Það er fátt sem fellur með krónunni um þessar mundir, vaxtamunur fer minnkandi og lífeyrissjóðir auka við erlendar fjárfestingar sínar, á sama tíma og viðskiptakjörin gefa eftir og Íslendingar fá ekki nóg af utanlandsferðum. Gengisspáin byggir á þeirri forsendu að gengi krónunnar haldi áfram að gefa eftir fram á næsta ár, en að flæðið, og ekki síst væntingar um innflæði, leggist síðar á sveif með krónunni.

Efnahagshorfur 2022-2025

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira