01.06.2017

Ný og ein­föld leið fyrir fyrir­tæki til að stofna til banka­viðskipta

Ný stafræn lausn á vef Arion banka gerir fyrirtækjum kleift að stofna til viðskipta við bankann á einfaldan og hraðvirkan hátt. Þegar stofnað er til viðskipta með þessum hætti fæst strax aðgangur að netbanka og bankareikningi. Áfram verður hægt að stofna til viðskipta í útibúum bankans.

Fram til þessa hefur stjórnarfólk fyrirtækja þurft að undirrita fjölda pappíra vegna stofnunar bankaviðskipta og skila frumritum allra skjala í næsta bankaútibú. Hin nýja lausn byggir á auðkenningu og undirritun stjórnar með rafrænum skilríkjum sem skila miklum pappírssparnaði auk þess að spara mörg spor við gagnaöflun og undirskriftir.

Stöðug aukning í notkun stafrænna lausna

Þessi nýja stafræna lausn er afrakstur þróunarvinnu Arion banka sem miðar að því að auka þægindi viðskiptavina og spara þeim dýrmætan tíma. Að undanförnu hefur bankinn sett í loftið fjölda nýrra stafrænna þjónustuleiða fyrir einstaklinga en lausnin sem nú er kynnt er sú fyrsta á sviði stafrænnar fyrirtækjaþjónustu. Áður hefur Arion banki meðal annars kynnt stafræna greiðsludreifingu kreditkortareikninga, greiðslumat og íbúðalánaumsóknir.

Viðskiptavinir hafa tekið nýjum stafrænum lausnum vel og nýta í stórauknum mæli fjölbreyttar leiðir til sjálfsafgreiðslu. Arion banki er eini íslenski bankinn sem býður tilvonandi viðskiptavinum að stofna til viðskipta á netinu en einstaklingum hefur boðist sú þjónusta frá því í ágúst 2016 og fer hlutfall þeirra sem kjósa að stofna til viðskipta í sjálfsafgreiðslu sífellt hækkandi.

Fleiri stafrænar lausnir væntanlegar

Arion banki leggur ríka áherslu fjölbreyttar og þægilegar þjónustuleiðir í takt við þarfir og óskir viðskiptavina. Í útibúum bankans er áfram veitt vönduð fjármálaráðgjöf en viðskiptavinir eru jafnframt hvattir til að koma í útibú og fá kynningu á nýjum stafrænum lausnum. Arion banki mun áfram vinna að innleiðingu stafrænna þjónustuleiða og fleiri lausna er að vænta á næstunni.

Umsóknarsíða fyrirtækja

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira