15.06.2017

Ný og ein­föld leið til endur­fjármögnun­ar á vef Arion banka

Frá og með deginum í dag er hægt að sækja um endurfjármögnun íbúðalána og undirrita öll fylgiskjöl á vef Arion banka með rafrænum skilríkjum. Mjög einfalt er að kynna sér kjör sem bjóðast á nýjum lánum og sækja um íbúðalán hjá Arion banka til að greiða upp eldri lán, óháð lánastofnun, sé það til hagsbóta.

Jafnframt hefur verið tekin í notkun ný lánareiknivél á vef bankans. Þar er hægt að bera kjör eldri lána saman við þau kjör sem bjóðast á nýjum íbúðalánum en slíkur samanburður auðveldar upplýsta ákvarðanatöku til muna. Ef kjör nýrra íbúðalána reynast hagstæðari, tekur umsókn um endurfjármögnun skamman tíma. Alltaf má gera hlé á umsókninni til að meta þá kosti sem eru fyrir hendi og taka síðan upp þráðinn að nýju þegar hentar.

Innleiðing stafrænna þjónustuleiða

Þessi nýja stafræna lausn einfaldar endurfjármögnun íbúðalána til muna en lausnin byggist meðal annars á stafrænu greiðslumati sem Arion banki kynnti í lok árs 2016. Reynslan af nýja greiðslumatinu og öðrum stafrænum lausnum sem bankinn hefur kynnt að undanförnu, er afar góð. Viðskiptavinir nýta í stórauknum mæli nýjar og þægilegar þjónustuleiðir bankans. Sem dæmi má nefna að framkvæmd greiðslumats hjá Arion banka hefur tvöfaldast að magni til frá því að ný stafræn lausn var kynnt til sögunnar.

Lausnin er afrakstur þróunarvinnu Arion banka sem miðar að því að bjóða viðskiptavinum betri bankaþjónustu og spara þeim tíma. Áður hefur bankinn meðal annars kynnt stafræna greiðsludreifingu kreditkortareikninga, íbúðalánaumsóknir, og einfaldar leiðir fyrir einstaklinga og fyrirtæki til að stofna til bankaviðskipta. Arion banki mun áfram vinna að innleiðingu stafrænna þjónustuleiða og fleiri lausna er að vænta á næstunni.

Óbreytt skilyrði lántöku

Öll skilyrði varðandi greiðslumat og veitingu íbúðalána eru óbreytt frá því sem áður var. Áfram er lánað fyrir allt að 80% af markaðsvirði fasteigna og lántökugjald íbúðalána er áfram 49.900 kr. óháð lánsfjárhæð. Lögð er rík áhersla á fræðslu og ábyrga ráðgjöf á sviði fjármála. Á nýja umsóknarvefnum eru stutt fræðslumyndbönd, svör við algengum spurningum og upplýsingar um algengar lánasamsetningar. Einnig er hægt að bóka fund með fjármálaráðgjafa í útibúi bankans, panta símtal og senda fyrirspurnir.

Nánari upplýsingar um endurfjármögnun
Reiknivél endurfjármögnunar
Sækja um endurfjármögnun

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira