19.08.2016

Ný og fljót­leg leið til að stofna til banka­viðskipta

Frá og með deginum í dag geta þeir sem vilja koma í viðskipti til Arion banka og eiga rafræn skilríki stofnað til viðskipta við bankann í gegnum netið á aðeins nokkrum mínútum. Um er að ræða tímamót í bankaþjónustu hérlendis því hingað til hefur aðeins verið unnt að stofna til viðskipta í íslenskum bönkum með því að fara í útibú. Þessi nýja leið sparar því viðskiptavinum tíma og fyrirhöfn. Nýjungin er jafnframt í takt við áherslur bankans í umhverfismálum á aukna hlutdeild pappírslausra viðskipta.

Með þessari nýju rafrænu leið er hægt að stofna til viðskipta og velja á milli helstu þjónustuleiða bankans, eins og veltureikninga, debetkorta, sparnaðarreikninga og kreditkorta. Aðgangur að netbanka stofnast sjálfkrafa sem og aðgangur að Arion banka appinu, fyrir þá sem sækja sér appið.

Allir þeir sem eiga rafræn skilríki, hafa náð 16 ára aldri og eru búsettir á Íslandi geta farið inn á vef Arion banka og stofnað til viðskipta við bankann með þessum hætti. Þeir sem hins vegar uppfylla ekki framangreind skilyrði þurfa nú sem fyrr að koma í útibú bankans og stofna þar til viðskipta, en búið er að einfalda og stytta það ferli til mikilla muna.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Við vinnum stöðugt að því að bæta þjónustu við okkar viðskiptavini og nú bjóðum við fólki að stofna til viðskipta við bankann með einfaldari hætti en hingað til hefur verið mögulegt. Hægt er að stofna til viðskiptanna heima í stofu, velja sér til dæmis debetkort og kreditkort á aðeins örfáum mínútum. Bankaviðskipti geta á stundum verið flókin og tímafrek enda gilda umfangsmiklar reglur um fjármálafyrirtæki en tilkoma rafrænna undirskrifta gerir okkur kleift að einfalda og bæta þjónustuna við viðskiptavini. Við munum halda áfram á þessari braut og bjóða viðskiptavinum okkar stafræna bankaþjónustu í auknum mæli og þannig auðvelda þeim að sinna sínum fjármálum með þægilegum hætti.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira