29.10.2024

Ný staf­ræn lausn hjálp­ar ein­stak­lingum að halda ut­an um kvitt­anir

Arion banki hefur kynnt til sögunnar nýja og einfalda lausn sem gerir einstaklingum kleift að hlaða kortakvittunum beint inn í Arion appið. Þú tekur einfaldlega ljósmynd af kvittun sem tengist kortafærslu og vistar hana í appinu með örfáum smellum. Þetta eykur yfirsýn yfir útgjöld og bætir utanumhald í fjármálum. Þá sparar lausnin bæði tíma og fyrirhöfn við að leita uppi pappírskvittanir síðar meir.

Svandís Edda Jónsdóttir, vörustjóri korta hjá Arion banka, segist finna fyrir mikilli ánægju með nýju lausnina, enda einfaldi hún fólki að halda utan um fjármálin á ýmsa vegu.

„Segjum að þú sért að gera upp baðherbergið og viljir halda utan um allar kvittanir –píparann, múrarann og svo framvegis. Þá er gott að venja sig einfaldlega á að mynda kvittanirnar jafnóðum og geyma í appinu. Við þekkjum öll hvernig pappírskvittanir eiga það til að týnast.“

„Annað gott dæmi væri þegar starfsmaður er á faraldsfæti í útlöndum og fær endurgreiddan kostnað frá vinnuveitanda, t.d. vegna gistingar; nú þarf hann ekki að óttast að kvittanirnar týnist. Sama gildir þegar saumaklúbburinn fer út að borða og einn borgar brúsann á veitingastaðnum; þá er gott að sjá sundurliðunina á kvittun þegar rukka á inn daginn eftir. Loks mætti nefna ferðina til sjúkraþjálfans eða sálfræðingsins; mörg stéttarfélög endurgreiða hluta slíks kostnaðar, gegn framvísun kvittunar. Dæmin er mýmörg.“

Arion banki hefur um árabil lagt áherslu á mæta síauknum kröfum einstaklinga um þægilegar og öruggar stafrænar lausnir í fjármálaþjónustu og er þessi nýjung enn eitt skrefið á þeirri vegferð. Hér má nálgast einfaldar leiðbeiningar um það hvernig nýta má lausnina.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira