27.05.2016

Ný þjónusta fyrir er­lenda ferða­menn: „Ma­ke every króna count“ með Cur­rency Card

Arion banki hefur hafið útgáfu á nýju fyrirframgreiddu alþjóðlegu Visa greiðslukorti, svokölluðu Currency Card, sem ætlað er erlendum ferðamönnum hér á landi. Hægt verður að nálgast kortið í öllum útibúum Arion banka, þar með töldum útibúum bankans í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli.

Kortið er hægt að nota hjá öllum söluaðilum sem taka Visa kort án PIN númera auk þess sem það veitir afslátt hjá fjölda öflugra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Currency Card felur í sér ýmsan annan ávinning fyrir ferðamenn s.s. eins og að þurfa ekki að greiða gjöld og þóknanir í kortaviðskiptum milli landa og minnka reiðufé í vasanum.

Nánari upplýsingar á www.currencycard.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira