04.01.2017

Nýherji tek­ur yf­ir rekstur upplýsinga­tækni­kerfa Arion banka

Arion banki hefur samið við Nýherja um útvistun á rekstri upplýsingatæknikerfa bankans. Nýherji mun taka við rekstri allra miðlægra innviða og kerfa og sinna almennri tækni- og vettvangsþjónustu gagnvart starfsfólki Arion banka.

Starfsfólki Arion banka sem sinnti slíkri þjónustu hefur öllu verið boðið starf innan Nýherja og hafa flestir þegið það – á þriðja tug þeirra mun hefja störf hjá Nýherja nú í byrjun janúar. Áfram starfa um 80 manns á upplýsingatæknisviði Arion banka m.a. við þróun stafrænnar þjónustu bankans og tæknistjórn.

„Við erum sérlega ánægð með það traust sem Arion banki hefur sýnt okkur. Nýherji hefur áralanga reynslu af rekstri og þjónustu á upplýsingatæknilausnum fyrir fyrirtæki og við trúum því að okkar þekking á þessu sviði muni styrkja Arion banka enn frekar. Þá býð ég öfluga starfsmenn frá Arion banka sérstaklega velkomna í hópinn,“ segir Finnur Oddsson forstjóri Nýherja.

„Við teljum rétt að útvista rekstri upplýsingatæknikerfa bankans til sérfræðinga sem hafa áralanga reynslu af slíkum rekstri fyrir atvinnulífið. Við höfum um árabil átt gott samstarf við starfsfólk Nýherja og það er ánægjulegt að stíga þetta skref með þeim inn í framtíðina. Það felast mikil tækifæri í þessu samstarfi fyrir bankann og það gerir okkur kleift að beina okkar kröftum enn markvissar að okkar kjarnastarfsemi – sem er að veita okkar viðskiptavinum góða fjármálaþjónustu,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka.

Nýherji er samstæða fyrirtækja í upplýsingatækni. Nýherji er þjónustufyrirtæki og hlutverk fyrirtækisins felst í að aðstoða viðskiptavini að ná enn betri árangri í sínum rekstri með aðstoð upplýsingatækni, sérfræðiþekkingu starfsfólks og lipurri þjónustu. Hlutabréf Nýherja hf. eru skráð í NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöll Íslands) undir auðkenninu NYHR.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira