08.12.2016

Ný­ir staf­rænir val­kostir viðskipta­vina Arion banka

Frá og með deginum í dag geta korthafar í viðskiptum við Arion banka sjálfir framkvæmt greiðsludreifingu á kreditkortareikningi sínum í netbankanum eða appinu. Einnig er opnað fyrir möguleika viðskiptavina á að stofna sjálfir greiðslukort og sparnaðar- og gjaldeyrisreikninga í netbankanum.

Þessar nýju lausnir eru afrakstur þróunarvinnu innan bankans sem miðar að því að auka þægindi viðskiptavina við að sinna sínum fjármálum. Nýju lausnirnar einfalda og flýta fyrir afgreiðslu þessara þjónustuþátta.

Einföld greiðsludreifing

Greiðsludreifing kreditkortareiknings verður aðgengileg í netbankanum eða appinu eftir að nýr reikningur er gefinn út og geta viðskiptavinir á einfaldan hátt valið hversu háa upphæð þeir greiða um næstu mánaðamót og á hve marga mánuði eftirstöðvarnar skiptast. Sem fyrr bera eftirstöðvarnar vexti. Þjónustan er viðskiptavinum að kostnaðarlausu fram til 1. apríl. Þá verður sett á stofngjald þegar ný greiðsludreifing er búin til og færslugjald fyrir hvern mánuð sem upphæð er dreift á. Bæði gjöldin í appinu og netbanka verða 220 kr. Uppfæra þarf Arion appið til að fá aðgang að þessari virkni.

Sjálfsafgreiðsla greiðslukorta og stofnun reikninga

Í netbankanum er nú sýnileg ný valmynd sem kallast Vöruúrval. Þar geta viðskiptavinir bankans skoðað úrval kreditkorta, debetkorta, sparnaðarreikninga og gjaldeyrisreikninga og stofnað vörurnar. Í þeirri viðleitni að einfalda valið fyrir viðskiptavini og auðvelda þeim að taka ákvörðun, er vöruúrvalið sérsniðið að hverjum og einum viðskiptavini.

Arion banki leggur mikla áherslu á að þróa stafrænar lausnir sem auðvelda viðskiptavinum að sinna fjármálum sínum hvar og hvenær sem er. Þessar lausnir eru liður í því. Fyrr á árinu kynnti bankinn stafræna leið til að stofna til viðskipta við bankann í gegnum netið, án þess að þurfa að koma við í útibúi bankans. Á næstunni verða kynntar frekari nýjungar á þessu sviði.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira