13.08.2019

Ný­ir stjórnar­menn hjá Arion banka

Á hluthafafundi Arion banka sem fram fór föstudaginn 9. ágúst voru þeir Paul Richard Horner og Gunnar Sturluson kjörnir nýir í stjórn bankans.

Stjórn Arion banka skipa nú: Brynjólfur Bjarnason (formaður), Herdís Dröfn Fjeldsted (varaformaður), Gunnar Sturluson, Liv Fiksdahl, Paul Richard Horner, Renier Lemmens og Steinunn Kristín Þórðardóttir.

Paul Richard Horner útskrifaðist með meistaragráðu í tónlist frá University of Oxford árið 1983 og er félagi í UK Chartered Institute of Bankers. Paul starfaði hjá Barclays PLC frá árinu 1988 til 2003 við ýmis stjórnunarstörf og áhættustýringu. Árið 2003 hóf Paul störf hjá The Royal Bank of Scotland Group (RBS) þar sem hann sinnti störfum framkvæmdastjóra og öðrum yfirmannsstöðum hjá Royal Bank of Scotland PLC. Paul var jafnframt skipaður í ýmsar stjórnunarstöður m.a. á sviði áhættustýringar til júní 2019. Á árunum 2012 til 2017 gegndi Paul stöðu yfirmanns áhættustýringar hjá Coutts & Co Ltd. og stöðu framkvæmdastjóra Coutts & Co Ltd, Zurich frá 2016 til 2017. Árið 2018 hóf Paul störf sem framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Ulster Bank DAC, Dublin, og er í dag stjórnarmaður í Coutts & Co Ltd í Zurich.

Gunnar Sturluson útskrifaðist með Cand.Jur gráðu frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1992, útskrifaðist með LL.M gráðu frá Háskólanum í Amsterdam árið 1995 og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 1993 og fyrir Hæstarétti Íslands árið 1999. Gunnar starfaði fyrir Málflutningsskrifstofuna árin 1992-1999 og var meðeigandi stofunnar frá 1995. Hann hefur starfað hjá LOGOS lögmannsþjónustu frá árinu 2000 sem meðeigandi og starfaði sem faglegur framkvæmdastjóri 2001-2013. Gunnar sinnti stundakennslu í samkeppnisrétti við lagadeild Háskóla Íslands 1995-2007. Gunnar hefur sinnt ýmsum stjórnarstörfum og var meðal annars stjórnarmaður í GAMMA hf. 2017-2019, stjórnarformaður Ríkisútvarpsins ohf. 2016-2017, var stjórnarmaður í gerðardómi Viðskiptaráðs Íslands, forseti FEIF, alþjóðasamtaka Íslandshestafélaga frá 2014, stjórnarformaður Íslenska dansflokksins 2013-2016 og kjörinn í landskjörstjórn af Alþingi 2013-2017.

Á hluthafafundinum var Júlíus Þorfinnsson jafnframt kjörinn í tilnefningarnefnd bankans og situr hann í þeirri nefnd ásamt Herdísi Dröfn Fjeldsted og Sam Taylor (formaður).

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira