31.10.2025

Nýr Fríðinda­reikningur: Vext­ir frá 7% - greidd­ir í hverri vik­u!

Við viljum að viðskiptavinir okkar njóti góðs af því að vera í viðskiptum við okkur. Því kynntum við nýlega til leiks sérstakt fríðindakerfi sem mun halda áfram að vaxa á næstu misserum – Arion fríðindi. Því meira sem þú nýtir þér fríðindi Arion samstæðunnar – hjá Arion banka, Verði, Stefni og Frjálsa – þeim mun meiri fríðindi færðu.

Við erum óhrædd við að prófa nýja hluti í fjármálaþjónustu og með Arion fríðindum viljum við umbuna þeim viðskiptavinum okkar sem nýta sér fjölbreytt vöruframboð Arion samstæðunnar.

Eina endurgreiðslan sem nær yfir allar tryggingar

Við hófum leik með Arion endurgreiðslunni. Hún virkar þannig að ef þú ert í viðskiptum hjá Arion og með Heimilisvernd hjá Verði geturðu fengið allt að 7% endurgreiðslu af tryggingum þínum með því að vera tjónlaus. Eins og sakir standa erum við eina íslenska fyrirtækið sem lætur slíka endurgreiðslu ná yfir allar tryggingar viðskiptavina sinna.

Nú í fyrsta skipti á Íslandi: Vextir frá 7% - greiddir í hverri viku!

Við höldum áfram að efla Arion fríðindi og kynnum til sögunnar nýjan sparnaðarreikning, Fríðindareikninginn, sem er sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi. Með Fríðindareikningnum bjóðum við upp á hæstu vexti á óbundnum reikningi sem eru í boði á Íslandi í dag – og þeir eru greiddir inn á reikninginn í hverri viku, sem hefur aldrei áður tíðkast hér á landi. Þannig sérðu í hverri viku hvernig peningarnir þínir ávaxtast hjá okkur.

Áttu eftir að skrá þig í Arion fríðindi?

Það er leikur einn að skrá sig í Arion fríðindi: Þú einfaldlega opnar Arion appið* og fylgir örfáum einföldum skrefum. Skráningin tekur varla meira en hálfa mínútu.

Í appinu ertu síðan með góða yfirsýn yfir fríðindi þín og þær þjónustur sem þú ert með hjá okkur ásamt því að sjá hvaða auknu fríðindi standa þér til boða.

Hvað varðar fríðindin er af nógu að taka. Þú gætir t.d. fengið hærri endurgreiðslu af tryggingunum þínum, ódýrara kreditkort og betri vexti á sparnaðinn.**

*Til að geta skráð þig til leiks þarftu að vera með útgáfu sem styður Arion fríðindi (iOS 3.59.0 eða hærra og Android 3.50).
**Endurgreiðsluprósenta, afslættir og önnur fríðindi fara eftir því á hvaða stigi þú ert.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira