01.12.2017

Nýr stjórnar­maður hjá Arion banka

Á hluthafafundi Arion banka sem fram fór fimmtudaginn 30. nóvember, var Steinunn Kristín Þórðardóttir kjörin nýr stjórnarmaður. Á sama tíma lætur Guðrún Johnsen, sem verið hefur varaformaður stjórnar Arion banka, af stjórnarsetu í bankanum.

Stjórn Arion banka skipa nú: Eva Cederbalk formaður, Brynjólfur Bjarnason, Jakob Már Ásmundsson, John P. Madden, Kirstín Þ. Flygenring, Måns Höglund, Steinunn Kristín Þórðardóttir og Þóra Hallgrímsdóttir. Kirstín er fulltrúi Bankasýslu ríkisins í stjórninni, Steinunn Kristín er tilnefnd af Attestor Capital en aðrir stjórnarmenn eru tilnefndir af Kaupskilum.

Steinunn Kristín starfaði sem framkvæmdastjóri hjá Beringer Finance á árunum 2015-2017, fyrst í Noregi og síðar á Íslandi auk þess að gegna stöðu forstöðumanns alþjóðadeildar fyrirtækisins á sviði matvæla og sjávarfangs. Árið 2010 stofnaði Steinunn ráðgjafafyrirtækið Akton AS í Noregi og var framkvæmdastjóri þess til ársins 2015. Hún starfaði hjá Íslandsbanka á árunum 2001-2008, fyrst sem forstöðumaður alþjóðalánveitinga og síðar sem framkvæmdastjóri bankans í Bretlandi. Steinunn er með MIM gráðu frá Thunderbird og BA gráðu í alþjóðaviðskiptum og stjórnmálafræði frá University of South Carolina.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira