20.05.2016

Ný­sköp­unar­keppni grunn­skól­anna - fjármála­dag­ur í Arion banka

Arion banki er sem fyrr aðalstyrktaraðili Nýsköpunarkeppni grunnskólanna en keppnin er ætluð nemendum í 5.-7. bekk. Alls bárust 1750 hugmyndir og voru 27 valdar úr til að keppa.

Á morgun, laugardaginn 21. maí, verður haldinn fjármáladagur fyrir þátttakendur í höfuðstöðvum bankans.Í boði verður metnaðarfull dagskrá þar sem meðal annars Breki Karlsson, forstöðumaður um fjármálalæsi, verður með fjármálafræðslu á léttu nótunum og frumkvöðlarnir í Jungle Bar segja frá sinni vegferð og veita krökkunum innblástur. Þátttakendur fá að lokum tækifæri til að spreyta sig í gerð einfaldra viðskiptalíkana.

Hér fyrir neðan má sjá dagskrá fjármáladagsins:

13:00  Mæting
13:10  Hvatningarorð - Tómas Ingason, forstöðumaður Gæði, öryggi og hönnun á upplýsinga- og tæknisviði Arion banka
13:20  Jungle Bar kynning - Stefán Atli Thoroddsen
13:35  Allt sem þú þarft að vita um peninga - Breki Karlsson, Stofnun um fjármálalæsi
14:10  Kaffihlé
14:30  Viðskiptalíkön (Canvans) - Haraldur Hugosson, sérfræðingur hjá Icelandic Startups
15:00  Æfing
15:50  Samantekt Canvans - Haraldur Hugósson, sérfræðingur hjá Icelandic Startups
16:00  Dagskrá lýkur

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira