05.02.2024

Nýtt skipu­rit Arion banka

Nýtt skipurit tekur gildi í dag hjá Arion banka. Helsta breytingin felst í því að upplifun viðskiptavina er ekki lengur eitt af stoðsviðum bankans og þar með fækkar sviðum og framkvæmdastjórum úr átta í sjö.

Upplifun viðskiptavina var stofnað árið 2021 með það að markmiði að bæta upplifun viðskiptavina af þjónustu og þjónustuleiðum bankans og efla samstarf Arion banka og Varðar. Á þessu tímabili hefur traustur grunnur verið lagður hvað varðar þjónustu Arion og upplifun viðskiptavina og að sama skapi hefur samstarf Varðar trygginga og Arion banka styrkst og skilað góðum vexti tryggingafélagsins.

Nú er komið að ákveðnum kaflaskilum í starfsemi Arion samstæðunnar sem kalla á breytt skipulag og aukna samlegð. Markmið breytinganna er að sameina sérþekkingu og reynslu í ríkari mæli en áður, stytta boðleiðir og auka enn við hraða í þróun þjónustunnar. Öll fyrirtækjaþjónusta mun heyra undir fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið, en áður sinnti viðskiptabankasvið þjónustu við lítil og meðalstór fyrirtæki á landsbyggðinni. Gagnamál munu alfarið heyra undir upplýsingatæknisvið og markaðsmál undir bankastjóra þar sem fyrir er samskiptasvið bankans. Einnig færast sérfræðingar í upplifun viðskiptavina og þjónustuleiðum inn í viðskiptaeiningar og þar með nær viðskiptavinum.

Að auki taka gildi ýmsar breytingar á innra skipulagi sviða Arion banka sem hafa það að markmiði að auka skilvirkni, samræma og einfalda stjórnskipulag og fækka stjórnendalögum. Við þessar breytingar fækkar forstöðumönnum bankans um 13%, en alls munu 11 starfsmenn hætta störfum hjá Arion banka í dag.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Markviss vinna síðustu ára hefur skilað okkur skýrri sýn sem mun gegna lykilhlutverki í þróun þjónustu Arion banka og dótturfélaga, viðskiptavinum til góða. Þjónustusvið bankans taka nú við mikilvægum verkefnum sem öll miða að því að efla okkar þjónustu. Markmið skipulagsbreytinganna er jafnframt að auka slagkraft og skilvirkni í allri okkar starfsemi með enn öflugri einingum, þéttu samstarfi og einföldun skipulags.

Við kveðjum í dag kært samstarfsfólk sem ég óska velfarnaðar á nýjum vettvangi.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
10. júlí 2026

Arion banki hefur söluferli á Blikastaðalandi

Arion banki hefur ákveðið að setja eignarhlut sinn í Blikastaðalandi í Mosfellsbæ í söluferli. Söluferlið er opið fjárfestum sem hafa til að bera reynslu af framkvæmd sambærilegra verkefna og búa yfir nægjanlegum fjárhagslegum styrk að mati bankans.

Lesa meira
09. júlí 2026

Arion banki ráð­gjafi kaup­enda við kaup á Nicetra­vel

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var ráðgjafi kaupenda við kaup á öllu hlutafé í Nicetravel ehf.

Lesa meira
06. júlí 2026

Árangur í áratug

Arion appið hefur verið valið besta bankaappið af viðskiptavinum bankanna í könnun Maskínu – tíunda árið í röð.

Um leið og við þökkum viðskiptavinum hjartanlega fyrir traustið og hlýhuginn nýtum við viðurkenninguna sem hvatningu til að halda áfram að gera ennþá betur. Við hjá Arion erum virkilega stolt af þeirri glæsilegu vinnu sem farið hefur fram hér innanhúss á síðustu árum. Svona árangur næst ekki næst ekki nema stór hópur metnaðarfulls starfsfólks leggist á árarnar og geri sitt besta, á hverjum einasta degi.

Lesa meira