21.03.2025

Öryggis­spjall með Troy Hunt

Arion banki boðar, í samstarfi við Syndis, til morgunfundar um öryggismál mánudaginn 31. mars í Borgartúni 19. Reyndir sérfræðingar í netöryggi fyrirtækja deila reynslu sinni svo að við getum öll tekist betur á við og komið í veg fyrir mögulega netglæpi.

Hinn þekkti öryggissérfræðingur Troy Hunt, stofnandi og forstjóri Have I Been Pwnd, segir á lifandi og skemmtilegan hátt frá því hvað við getum lært af milljón gagnalekum og deilir víðtækri reynslu sinni af samstarfi við stjórnvöld, löggæslufólk og tæknigeirann.

Dagskrá:
  • Opnunarávarp, Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri

  • „Það sem læra má af milljón gagnalekum“ - Troy Hunt, stofnandi og forstjóri Have I Been Pwnd

  • „Áhrif gagnaleka á íslenskar netárásir“ - Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis

Viðburðurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá sig.

Skráning á morgunfundinn

Húsið verður opnað kl. 08.30. Fundurinn hefst kl. 09.00 og stendur til 11:00. Boðið verður upp á létta hressingu fyrir fundinn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira