01.06.2016

Of­næm­is­skynjari, morg­un­verðar­skál með halla og glugga­opn­ari fyrir ketti fengu verð­laun

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna lauk nú nýlega og var Arion banki aðalstyrktaraðili í ár líkt og fyrri ár.

Þátttakendur keppninnar, sem er ætluð nemendum í 5. – 7. bekk, tóku þátt í fjármáladegi í höfuðstöðvum Arion banka laugardaginn 21. júní en lokahóf keppninnar var haldið sunnudaginn 22. maí í Háskólanum í Reykjavík og þar var tilkynnt um úrslit.

Fjöldi frábærra hugmynda komu fram en það voru 39 hugmyndaríkir krakkar sem komust í úrslit með 27 hugmyndir.

Hér fyrir neðan má sjá nöfn sigurvegaranna og skemmtilegt myndband frá fjármáladeginum. Myndir af hópunum má sjá hér fyrir ofan.

Eftirfarandi fengu verðlaun fyrir 1. sætið:

  • Hekla Ylfa Einarsdóttir í 5. bekk Hofsstaðaskóla, fyrir hugmyndina Baðkarspípari.

  • Hrafnhildur Haraldsdóttir í 6. bekk Árbæjarskóla og Hafsteinn Yngvi Kolbeinsson í 6. bekk Langholtsskóla, fyrir hugmyndina Hitaskiltið.

  • Guðrún Erlendsdóttir og Mónika Andjani í 7. bekk Húsaskóla, fyrir hugmyndina Hneppu handklæðið.

Eftirfarandi fengu verðlaun fyrir 2. sætið:

  • Björn Þór Hrafnkelsson í 5. bekk Stóra Vogaskóla, fyrir hugmyndina Gluggaopnari fyrir ketti – MurrinnX.

  • Sonja Ingimundardóttir í 6. bekk Hofsstaðaskóla, fyrir hugmyndina Ofnæmiskynjari.

  • Áshildur Þóra Heimisdóttir í 7. bekk Sæmundarskóla, fyrir hugmyndina Teljandi fótbolti.

Eftirfarandi fengu verðlaun fyrir 3. sætið:

  • Ásdís Ólafsdóttir í 5. bekk Hofsstaðaskóla, fyrir hugmyndina Morgunverðarskál með halla.

  • Óskar Aron Stefánsson og Indriði Ægir Þórarinsson í 6. bekk Varmahlíðarskóla, fyrir hugmyndina Markaskráarappið.

  • Sindri Immanúel í 7. bekk í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri, fyrir hugmyndina Rafknúinn hurðarlokari.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira