09.03.2017

Op­inn fund­ur HSÍ: Ný kyn­slóð - ný tæki­færi

HSÍ fagnar 60 ára afmæli í ár og af því tilefni ætlar sambandið í samstarfi við Arion banka að boða til fundar þar sem farið verður yfir greiningu á leik landsliðsins á HM í Frakklandi, aðferðafræði íslenska kvennalandsliðsins og hvernig framtíð íslenskra landsliða í handbolta lítur út.

Fundurinn verður haldinn á morgun, föstudaginn 10. mars í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, og hefst klukkan 16:15.

Dagskrá

  • HM í Frakklandi -  Geir Sveinsson

  • Norska leiðin - Axel Stefánsson

  • Landsliðin til framtíðar - Viðar Halldórsson

  • Unglingalandsliðin sumarið 2017 - Guðmundur B. Ólafsson

  • 60 ára afmæli HSÍ - Guðmundur B. Ólafsson

Fundurinn er opinn öllum og verður sendur út í beinni útsendingu á Facebook síðu Arion banka.

Skráning á fundinn

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira