26.07.2016

Op­inn Startup Reykja­vik við­burður mið­viku­dag­inn 27. júlí kl. 16.30

Arion banki og Startup Reykjavík verða með opinn viðburð miðvikudaginn 27. júlí þar sem fimm teymi af þeim tíu sem taka þátt í Startup Reykjavík í ár kynna viðskiptahugmyndir sínar. Er þetta seinni hópurinn af tveimur sem kynna hugmyndir sínar en kynningin hjá fyrri hópnum, sem haldin var 7. júlí, gekk afar vel fyrir sig.

Auk kynninga frá teymunum fimm mun Hjálmar Gíslason frá Qlik veita gestum innsýn í þróun vöru fyrir alþjóðamarkað, aðlögun á viðskiptamódeli og hvað starf á alþjóðamarkaði felur í sér. Viðburðurinn fer fram í höfuðstöðvum Startup Reykjavík, Borgartúni 20, 3. hæð, miðvikudaginn 27. júlí kl. 16.30 og eru allir hjartanlega velkomnir.

Nánar um viðburðinn

Startup Reykjavík er viðskiptahraðall þar sem Arion banki fjárfestir í tíu teymum og veitir þeim stuðning til að þróa sínar viðskiptahugmyndir. Startup Reykjavík er í eigu Arion banka og er samstarfsverkefni bankans og Icelandic Startups.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira