26.01.2016

Opn­að fyrir um­sóknir um þátt­töku í Startup Reykja­vík 2016

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um þátttöku í Startup Reykjavík 2016 og er umsóknarfrestur til 31. mars. Að vanda er leitað eftir spennandi viðskiptahugmyndum til að taka þátt í 10 vikna viðskiptahraðli í sumar. Markmiðið með Startup Reykjavík er að skapa umgjörð þar sem þátttakendur njóta ráðgjafar og leiðsagnar reynslumikilla aðila í þeim tilgangi að þróa og ýta úr vör nýjum viðskiptatækifærum. Arion banki fjárfestir í hverju félagi fyrir sig og í ár hækkar fjárfesting Arion banka í hverju félagi um 20% frá fyrri árum og verður 2,4 milljónir króna.

Startup Reykjavík hefur fest sig í sessi hér á landi og vakið athygli út fyrir landsteinana, en í fyrra var Startup Reykjavík valinn besti viðskiptahraðall Norðurlanda af Nordic Startup Awards.

Startup Reykjavík, sem fer fram frá 13. júní til 26. ágúst í sumar, er samstarfsverkefni Arion banka og Icelandic Startups. Arion banki leggur til fjármagn í gegnum dótturfélag sitt, Startup Reykjavik Invest ehf., en umsjón verkefnisins er í höndum Icelandic Startups. Þetta er í fimmta sinn sem viðskiptahraðallinn er haldinn og hefur Arion banki hingað til fjárfest í 40 fyrirtækjum frá því verkefnið hófst árið 2012. Þau fyrirtæki, sem hafa farið í gegnum Startup Reykjavík, hafa sótt sér fjármagn sem nemur um einum milljarði króna, ýmist í formi hlutafjár eða styrkja.

Hver sem er getur sótt um í Startup Reykjavik, hvort sem það er einstaklingur eða fyrirtæki. Engar kröfur eru gerðar um hversu langt á veg hugmynd þarf að vera komin. Á undanförnum árum hafa konur verið í minnihluta umsækjenda og þátttakenda. Þær eru því sérstaklega hvattar til að senda inn umsóknir í Startup Reykjavík í ár. Hægt er að sækja um á vefsíðu Startup Reykjavík, www.startupreykjavik.com.

Teymin tíu, sem valin eru til þátttöku, fá:

  • 2,4 milljónir króna í hlutafé frá Arion banka gegn 6% hlutdeild í fyrirtækinu

  • 10 vikna þjálfun/ráðgjöf frá leiðbeinendum víðs vegar að úr atvinnulífinu

  • Sameiginlega aðstöðu allra viðskiptateymanna í Borgartúni 20

  • Tækifæri til að kynna sig og verkefni sín fyrir fjárfestum á lokadegi verkefnisins

Meðfylgjandi eru myndir af þremur teymum sem tóku þátt í Startup Reykjavík 2015.

Fjármögnun fyrirtækja sem hafa tekið þátt í Startup Reykjavík á undanförnum árum

Fjármögnun Startup Reykjavík fyrirtækja eftir árgöngum í m.kr:

Fjármögnun Startup Reykjavík fyrirtækja eftir eðli fjármagns í m.kr:

Fjármögnun Startup Reykjavík fyrirtækja eftir eðli fjármagns í m.kr. frá árinu 2012:

Uppsafnaður fjöldi fjárfestinga Arion banka í sprotafyrirtækjum:

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira