21.06.2018

Opnir við­burð­ir Startup Reykja­vik í sumar

Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavík er nú kominn í gang og líkt og síðustu ár fer starfsemin fram í Borgartúni 20. Teymin eru nú á sinni annarri viku og hafa fundir með mentorum einkennt starfið þessa vikuna.

Nokkrir opnir viðburðir verða haldnir í sumar og eru áhugasamir hvattir til þess að mæta.

Opnir viðburðir framundan:

  • PopUp & Pitch - fimmtudaginn 28. júní kl. 17.00. Borgartúni 20, 3. hæð
    Fimm fyrirtækjanna halda örkynningar á sinni starfsemi. Að því loknu verður boðið upp á grillaða hamborgara og drykki.

  • Q&A með Chandini Ammineni - þriðjudaginn 10. júlí kl. 16-17. Borgartúni 20, 3. hæð
    Chandini er meðeigandi hjá 500 Startups, sem er einn af stóru viðskiptahröðlunum í Bandaríkjunum. Hún er reyndur fjárfestir og fyrirlesari og þekkir vel áskoranirnar við að byggja upp fyrirtæki frá grunni. Chandini heldur stuttan fyrirlestur og tekur við spurningum í kjölfarið.

  • PopUp & Pitch - fimmtudaginn 26. júlí kl. 17. Borgartúni 20, 3. hæð
    Fimm fyrirtækjanna halda örkynningar á sinni starfsemi. Að því loknu verður boðið upp á grillaða hamborgara og drykki.

Startup Reykjavík er nú haldið sjöunda árið í röð. Í lok sumars munu 70 fyrirtæki hafa farið í gegnum viðskiptahraðalinn. Startup Reykjavík hefur þannig sýnt sig vera mikilvægur hluti af stuðningsumhverfi frumkvöðla á Íslandi. Arion banki er eigandi Startup Reykjavik og vinnur verkefnið í náinni samvinnu við Icelandic Startups.

Nánar um Startup Reykjavik

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira