10.05.2016

Opn­un á Kefla­vík­ur­flug­velli

Sunnudaginn 8. maí lauk framkvæmdum í tenglum við opnun Arion banka á Keflavíkurflugvelli með formlegum hætti.

Bankinn er með starfsemi á þremur stöðum innan flugstöðvarinnar, það er í brottfararsal og komusal, ásamt afgreiðslu fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts, sem einnig er staðsett í komusal. Að auki eru 13 hraðbankar víða um flugstöðvarbygginguna sem farþegar geta nýtt á ferð sinni til eða frá landinu.

Í tilefni opnunarinnar á sunnudaginn var skálað við útibúið í brottfararsalnum. Aðalheiður Guðgeirsdóttir, svæðisstjóri á Keflavíkurflugvelli, klippti á borða ásamt Höskuldi H. Ólafssyni, bankastjóra Arion banka, og Hlyni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira