03.02.2017

Opn­un mynd­list­ar­sýningar í höfuð­stöðv­um Arion banka laug­ar­dag­inn 4. fe­brú­ar

Laugardaginn 4. febrúar kl. 13.30 opnar sýningin Því myndin byrjar einhvers staðar í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Á sýningunni eru málverk úr safneign bankans frá 1939-1993 pöruð við málverk yngri listamanna frá 2010-2016 – verk sem kallast á með einum eða öðrum hætti.

Tuttugu listamenn, fæddir frá 1901-1984, eiga verk á sýningunni. Þeir koma úr ólíkum áttum og vinna oftar en ekki út frá ólíkri hugmyndafræði, en eiga það þó sameiginlegt að nota málverkið sem miðil. Verkin á sýningunni tengjast á mismunandi hátt, sum í formi, önnur í lit og línum eða jafnvel hrynjanda. M.a. parast verk þriggja yngri listamanna við jafnmörg verk eftir Þorvald Skúlason, en titill sýningarinnar er einmitt tilvitnun í viðtal við Þorvald frá 1976.

Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru Bragi Ásgeirsson, Davíð Örn Halldórsson, Guðmundur Thoroddsen, Heimir Björgúlfsson, Helgi Már Kristinsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Helgi Þórsson, Hildur Bjarnadóttir, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir, Jóhannes Jóhannesson, Magnús Helgason, Magnús Kjartansson, Marta María Jónsdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir Ream, Snorri Arinbjarnar, Svavar Guðnason, Vilhjálmur Bergsson, Þorvaldur Jónsson og Þorvaldur Skúlason.

Sýningin hefst á fyrirlestri Dorothée Kirch þar sem hún segir frá verkunum og veltir fyrir sér hvernig hugmyndir listamanna enduróma milli tímabila.

Dorothée Kirch (f. 1974) hefur starfað við myndlist á Íslandi undanfarin 16 ár, meðal annars fyrir Listasafn Reykjavíkur, Listasafn Íslands og Listahátíð í Reykjavík. Hún var framkvæmdastjóri íslenska skálans á Feneyjartvíæringnum 2011 og 2013 og sýningarstjóri skálans 2009. Hún var framkvæmdastjóri Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar um tíma og hefur komið að fjölmörgum öðrum verkefnum á sviði myndlistar sem sýningastjóri og ráðgjafi. Dorothée útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2001 með BA gráðu í myndlist og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005.

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar í höfuðstöðvum bankans á laugardaginn kl. 13.30.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira