19.12.2023

Opn­unar­tími yf­ir há­tíð­irnar

Útibú okkar og þjónustuver verða lokuð á jóladag og annan í jólum. Aðra daga verður opið hjá okkur á hefðbundnum tíma.

Þann 2. janúar munu útibú okkar opna kl. 12.00, en opið verður í þjónustuveri þann dag frá kl. 9.00.

Gjaldeyrisþjónusta okkar á Keflavíkurflugvelli verður opin yfir hátíðirnar. Á aðfangadag, jóladag og gamlársdag verður afgreiðslan í brottfararsal opin frá 04:30 til 16:30 og afgreiðslan í komusal ásamt Tax Free þjónustunni frá 05:00 til 17:00. Aðra daga verður opið samkvæmt hefðbundnum opnunartíma. Þá er alltaf hægt að nálgast gjaldeyri í hraðbönkunum okkar á flugvellinum.

Við minnum á að í Arion appinu er hægt að stunda öll helstu bankaviðskipti og þá er er alltaf hægt að leita svara í netspjallinu okkar. Fyrir neyðartilvik tengd debet- og kreditkortum er hægt að hringja í síma 444 7000 og velja 5 og verður ykkur þá gefið samband við neyðarþjónustuna okkar.

Hafið það gott yfir hátíðirnar!

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira