01.12.2023

Ráð­stefna Arion banka og BBA//Fjeldco um fram­tíðar­tæki­færi á norður­slóð­um

Þann 8. nóvember síðastliðinn héldu Arion Banki og BBA//Fjeldco ráðstefnu um framtíðartækifæri á norðurslóðum, „Investment Opportunities in the Arctic”. Þar voru mættir fulltrúar frá mörgum helstu fyrirtækjum á svæðinu og kynntu þeir starfsemi sína ásamt framtíðarsýn þeirra fyrir norðurslóðir, með nýsköpun og sjálfbærni að leiðarljósi.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum forseti Íslands og stjórnarformaður Hringborðs Norðurslóða (e. Arctic Circle), var aðalfyrirlesari ráðstefnunnar og í ræðu sinni bar hann saman norðurskautið og ameríska vestrið í byrjun 20. aldarinnar, og ræddi hlutverk Íslands í framtíðarþróun þess. Aðrir ræðumenn voru Iða Brá Benediktsdóttir frá Arion Banka, Guðmundur Fertram Sigurjónson frá Kerecis, Jón Sigurðsson frá Stoðum, Haukur Harðarsson frá Arctic Green, Jens Meinhard Rasmussen frá Smyril Line, Hjörtur Erlendsson frá Hampiðjunni og Magnús Harðarsson frá Nasdaq Iceland. Fundarstjóri var Friðrika Geirsdóttir. Gunnar Þór Þórarinsson, forstöðumaður skrifstofu BBA//Fjeldco í London, og Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion Banka, slitu svo ráðstefnunni.

Ráðstefnan var vel heppnuð og mæting var góð, það var gaman að sjá hversu margir sýndu norðurslóðum og framtíð þeirra áhuga.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira