12.09.2019

Rakel Óttars­dóttir framkvæmda­stjóri upplýsinga­tækni­sviðs Arion banka hættir störf­um

Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, hefur óskað eftir að láta af störfum.

Rakel hefur setið í framkvæmdastjórn bankans frá árinu 2011 þegar hún tók við starfi framkvæmdastjóra þróunar- og markaðssviðs. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs árið 2016. Hún mun láta af störfum föstudaginn 20. september næstkomandi.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Rakel hefur starfað hjá bankanum frá árinu 2005 og í störfum sínum haft mikil áhrif á þróun bankans, ekki síst á sviði stafrænna lausna þar sem bankinn hefur verið í forystuhlutverki á undanförnum árum. Ég þakka Rakel hennar góðu störf og óska henni velfarnaðar í framtíðinni.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira