11.07.2022

Rapyd er nýr eig­andi Valitor

Kaup Rapyd á Valitor gengu í gegn 1. júlí síðastliðinn. Samið var um kaupin ári fyrr, eða 1. júlí 2021, en með samþykki Samkeppniseftirlitsins þann 23. maí síðastliðinn og samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands 30. júní hafa allir fyrirvarar verið uppfylltir í samkomulagi Arion banka og Rapyd um kaupin.

Rapyd er alþjóðlegt fjártæknifyrirtæki sem styður við söluaðila, hugbúnaðarfyrirtæki, og greiðsluþjónustuaðila um allan heim í því að þróa og virkja fjártækni- og greiðslulausnir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira